Valid CSS!
...steinip.net :) ...steinip.net :)
Senda SMS
Leyfður Stafafjölldi er "95"
Símanúmer: Símanúmer:

Skilaboð: Skilaboð:

Skoðanakönnun
Ert þú komin í jólaskap..?

Ójá!!
Svona lala
Neibbs



Youtube og Símamyndband
Vinsælustu Tenglar Vikunar B2

Húsvískir Artistar Núverandi MSN Display
Mánudagurinn
6. September
2010
Dagsetning Upplýsingar
Um Mig

01. Nafn: Aðalsteinn
02. Fæðingarár: 1987
03. Stjörnumerki: Bogamaður
04. Heimilisfang: 4hæða Blokk
05. Staður: Út í nátturunni
06. Sími: Þekkir mig.. veistu það.
07. Vefpóstur: hafa samband
08. Gæludýr: Skotta ( Köttur )
09. Áhugamál: Djamm, rúnta og vinir
10. Hjúskaparstaða: Á Lausu
11. Partýmanneskja: Af og til
12. Hárlitur: Svartur
13. Augnlitur: Blár
14. Bíll: Lancer
15. Systkini: Gudda

7 - 12ára upp Aðalsteinn heiti ég og hannaði ég þennan vef sjálfur. Að hanna vefsíður og graffík er hálfgert hobbý. Ég byrjaði fyrst að stunda tölvur aðeins sex ára að aldri. Fyrsta tölvan var reyndar Family Game, sem var leikjatölva ekki alveg jafn vinsæl og Nintendo en þetta var fyrsta leikjatölva sem ég prófaði. Uppáhalds leikurinn minn í hana var enginn annar en Super Mario Bros III, til að spila hann þurfti ég ákveðið millistykki því hann var ætlaður Nintendo en ekki Family Game en með þessu millistykki gat ég spilað hann eins og í Nintendo. Seinna kom leikjatölva númer tvö og var það Playstation I, ætli ég hafi ekki verið rúmlega 8-9 ára ( '95-'96 ) þegar ég kaupi mér hana í Óm sem nú er ekki lengur til. Maður spilaði engann leik jafn mikið og leikinn Tomb Raider 2 sem maður fékk að láni. Einnig hékk maður með besta vini sínum á þeim árum honum Birkir Árnasyni í leik sem bar nafnið Rogue Trip: Vacation 2012 og það eina sem maður gerði var að leika Meat Wagon kallin og slá hann frammaf með pylsunni ofan á bílnum, vá hvað eg man eftir þessu (maður ætti kanski að redda sér emulator og leiknum). Allavega í kringum þetta leiti fæ ég fyrstu PC Tölvuna mína sem hljómaði ekki uppá marga fiska. 66mhz ég átti eina á undan já eða pabbi en hún var svo ótrúlega lélégt að mér fannst ekki þess virði að nefna hana hér 15mhz 3 8 6. Í þessari 66mhz tölvu var ekki mikið hægt að gera nema stunda smáleiki eins og Need For Speed 1 og fíblast eitthvað lítið með honum Gumma ST, sem á þeim tíma var einn besti vinur minn. Ekki löngu seinna þegar ég er kanski 10-11 ára fáum við 90mhz Pentium I' þá fyrst var hægt að gera eitthvað eins og að spila Doom' almennilega og Duke Nukem 3D. Svo átti eitt sinn vinur minn Bragi Rafn afmæli og þar kynnist ég vini mínum Kristján Heimi og við spjöllum allt tímabilið úti sem við erum í fótbolta í afmælinu hjá honum um DOOM1, þá langaði honum svo mikið í DOOM Fulla útgáfu sem ég átti og yfir því að lána honum þann tölvuleik urðum við góðir vinir. Ég og Kristján vorum góðir leikfélagar þá 11-12 og svo seinna það ár kynnist ég Stefán Birni og verður hann og ég mjög góðir vinir og héngum við frekar mikið í tölvu, þó við héngum oft úti. 13 - 15ára upp Svo kom Quake tímabilið. Kringum það tímabil er ég komin á 300mhz vél. Á þessu tímabili er maður svolítið vel sokkin í leikjaheimin þ.e.a.s AQ. Fyrsta liðið sem við bjuggum til var (AQH) og átti ég og Stebbi það. Bjartur Viðars bjó til (XXX) með sínum félögum og kepptum við oft AQH móti XXX. Svo þegar við vorum búnir að vera búa til endalaus lið í AQ fyrsta árið í leiknum fórum við að verða betri í leiknum og bjuggum til lið sem virkaði ágætlega svosem fyrir okkur og það var wRs og er síðan uppi ennþá sem má benda á að var þetta fyrsta vefsíðan sem ég gerði sem fór á netið. Munur á síðunni þá og hvernig ég bý þær til í dag, við spiluðum þennan leik ofan í eitt alla daga vikunnar þangað til að ég var rúmlega 15 ára, rúmlega 2 til 3 ár í AQ og maður er enn í dag með hann í tölvunni ( 19 ára ) þó svo allir leikþjónar eru gjörsamlega tómir. Bestu liðin í leiknum voru QNI, MBI, QWA, MaxTac, P@, og mAIm. Ég spilaði við stebba margoft duel þar sem ég er bara móti honum í 3-4 borð. Þetta var frábært tímabil þangað til maður var orðin 15 að verða 16 ára. 16 - 19ára upp Frá 16 ára til 19 ára var maður að klára 10.bekk í grunnskóla og á leið í framhaldsnám sem entist í eitt ár og fór ég svo að vinna og setti skólann á bið 2003-2004. Byrjaði að fá vinnu hjá Bænum og hef unnið þar seinustu 4-5 sumur. Vann svo í 7 mánuði 2005 hjá G.P.G Hausaþurkun. Eftir að ég komst að því á sjö mánuðum að ástæða þess að ég hóstaði og og leið svona illa væri vegna ákveðinna efna í loftinu í þurkuninni þá hætti ég þar og fór á atvinnuleysisbætur um tíma þar til ég fór aftur að vinna hjá bænum annað sumarið. Eftir það sumar ákvað ég svo að fara í skóla 2006 til 2007. Vann þá frá ágúst frammí febrúar hjá Samkaup úrval sem reyndist erfiðara með tímanum. En allavega á þeim tíma sem ég vann þar var ég komin með bílpróf og Mitsubishi Lancer bílinn minn sem ég þurfti auðvita að vinna til að geta borgað af. Ég var búin að kynnast Sigrún, Elsu og Ástu og kynntist ég þeim aðeins fyrir áramót 2006 og ég auðvita orðinn nítján ára í desember þetta árið og var svo auðvita brjálæðislega gaman áramót 2006. Svo rétt eftir áramót í febrúar kynnist ég Sylvíu Dögg um tíma og einnig Aldís og Agnes. Að kynnast þeim var ágætt og seinna meir rúmlega mánuð síðar byrjaði ég með Aldísi og gekk það í rúmlega mánuð. Allt ruglið og drama sem gekk þar á milli mín og hennar og bara allt var svo mikið rugl að það gekk ekki svo við hættum saman. Ég varð vinur hennar svo um tíma en slettist aðeins uppá vinskapinn í rúmlega mánuð eða 2. Hún flutti svo burtu og við urðum aftur vinir sem við nú erum. Ég þekki ekki Agnesi eins og fyrst og hættum við að vera miklir vinir eftir að Aldís flutti burtu. Þetta er í grófum dráttum um mig. Nenni ekki að skrifa meir hérna og læt því þetta nægja.

































































Youtube Vikunar |Youtube Mánaðarins |Húsvíska Safnið!
Skota Kassinn! |